Ađalvalmynd

Innskráningar kubbur

Leit

Tenglar

Leikur dagsins

Undirsíđukubbur

Ég sá John Travolta...Erla Ásmundsdóttir

...eða svona næstum því, það er þó allavegana meira en margir geta sagt. Sko málið var að ég var að sækja Ingibjörgu í vinnuna (hún vinnur í flugstöðini) og á leiðinni þá hringir hún í mig og segir mér að drífa mig geggjað mikið svo að ég gæti séð John Travolta. Ég nátturulega gaf allt í botn á Yarisnum mínum svo að ég myndi ná. Þegar að upp í flugstöð var komið þá sá maður bara ekki neitt. Þá hafði kappinn víst lendt (ég sel það ekki dýrar en ég keypti það) á flugvellinum til að taka bensín eða eitthvað og bað um að fríhöfnin yrði opnuð en svo lét hann bara ekki sjá sig. Það kom reyndar eitthvað lið að versla en við vitum ekkert hvejir það voru. En samkvæmt öllum þessum upplýsingum þá get ég montað mig á þvi að ég hef verið í sama húsi og John Travolta. Og já ef þetta er satt þá sá ég flugvélina hans.
Ég veit að þetta er mjög tilgangslaust blogg en ég varð bara að fá að deila þessu með ykkur og sérstaklega henni Ástu Steinunni, ég væri alveg til í að sjá svipinn á henni þegar að hún les fyrirsögnina Hlæjandi

Meira blogg seinna bæjó

P.S allir að kvitta fyrir sig takk.

Ný könnun...Erla Ásmundsdóttir

Jæja þá er loksins komin ný könnun inn hjá mér. Mér þætti mjög vænt um það að þið sem komið hér inn svarið henni til þess að hjálpa mér að ákveða mig. Takk fyrir

Fullt ađ gerast...eđa ţannig...Erla Ásmundsdóttir

Jæja krakkar mínir þá er 2-3 dagar liðnir frá síðasta bloggi eða svona næstum því. Ég sit hér í vinnuni minni á Paddy´s og ákvað ég það að hætt bara í þessari fýlu út í bloggið mitt. Finnst ykkur ég ekki vera fullorðinsleg að geta það ? Glottandi

 

En já  það hefur heldur betur mikið gerst hjá mér síðustu síðast. Ég bara veit ekki alveg hvar ég á að byrja.

Í fyrsta lagi þá er skólinn byrjaður og viti menn það er svo mikið að gera að maður kemst varla yfir það. Þessa stundina þá á ég að gera eina ritgerð, upplýsingartækniverkefni, leiðarbók í íslensku og dönsku, heimadæmi í stæfræði, söguverkefni, verkefni í ensku um Skotland og síðast en ekki síst glærukynningu í ensku.  Þetta er samt ekkert rosalega mikið er  það nokkuð?

Í öðru lagi þá var hún elskulega mamma mín 50 ára gömul/ung um daginn, eða réttara sagt 26. janúar. Var haldin rosaleg veisla og fínheit heima hjá henni. Pabbi gaf henni siglingu um Karabískahafið í ammalisgjöf og er þau stödd þessa stundina út í Orlando og bíða eftir því að fara um borð í skipið Þögull sem gröfin (pjöllur)

Í þrijða lagi þá varð ég veikari en allt sem veik er í síðustu viku. Ég get svo svarið fyrir það að ég hélt á tímabili að ég væri að deyja þannig að ég dullaði mér loksins til læknis og kom það í ljós að ég var með streptakokka og astma og allt það helvítis rugl. Þannig að eftir læknisheimsóknina beið mín pensilínkúr og allur fjandinn heima. Ég gat því miður ekki vælt mikið yfir þessu öllu saman þannig að ég dældi þessum blessuðu töflum bara í mig, en viti menn þá fór pensilínið svo illa í mig að ég varð aftur veik. Það er ekki hægt að vera heppnari, er það nokkuð?

Í fjórða lagi þá vil ég bara láta vita af því að sambúðin hjá okkur gellunum gengur geggjað vel. Við náum allar mjög vel saman og höfum það bara rosa gott á Vallarheiðinni. Við erum nú samt allar búnar að eignast mann eða Kamilla átti nú samt þennan mann áður en hún flutti en ég og Ingibjörg fáum að nota hann við að hjálpa okkur við ímislegt líka (svo lengi sem það er ekki í herberginu) þannig að með réttu þá á ég mann en ekki kæró samt.

Í fimmta og síðasta lagi þá vil ég bara spyrja fólk HVAÐ ER MÁLIÐ MEÐ ÞETTA VEÐUR??? Ef það er einhver sem getur svarað því þá yrði ég mjög glöð að fá að vita svarið við þessari spurningu. Ég er að bilast á þessu, maður veit aldrei hvort maður komist út á daginn eða ekki út af snjó. Bílinn manns er alltaf að festast og maður er alltaf að skafa og eitthvað rugl.

 

En já þá held ég að þetta blogg sé orðið fínt það er kannski eitt sem þið viljið vita en þá ætla ég að djamma eins og vindurinn alla helgina og mér hlakkar svo geggjað til út af því að ég er ekki búin að djamma almennilega svo lengi. Ég bara get ekki beðið Hlæjandi

 

En þangað til næstu bæbæbæbæbæbbæbæbæbæbæbæbæbæbæbæbæbæbæbæbæbæbæbæbæbæbæbæbæbæbæbæbæbæbæbbæ bæjó

 

P.S kvittið fyrir ykkur J

Brjáluđ...Erla Ásmundsdóttir

Ég vil bara segja það að ég var búin að gera geggjað flott og langt blogg hér áðan en þegar að ég vistaði það þá þurkaðist það bara út Gráta

Þannig að ég ákvað bara að leyfa mér að fara í smá fýlu núna og bíða í svona 2-3 daga með að blogga aftur.

Vonandi skiljið þið mig og verðið ekki fúl út í mig ég er að reyna að standa mig í þessu þótt svo að ég er ekki að gera það Öskrandi

Gleđilegt ár allir...Erla Ásmundsdóttir

Jæja núna er held ég alveg kominn tími á smá blogg. En já jólin eru búin og er ég búin að hafa það ótrúlega gott, búin að éta á mig gat og allann pakkann. Ég er loksins flutt AFTUR út frá mömmu og pabba en fyrir þá sem ekki vita þá er ég farin að leigja íbúð upp á Kanavelli ásamt tveimur vinkonum mínum, þeim Kamillu og Ingibjörgu. Íbúðin er geggjuð og þetta gegnur allt rosa vel. Skólinn byrjar svo aftur á mánudaginn og get ég varla beðið, ég er komin með ógeð á því að vera í endalausu fríi og já ég gleymi að láta ykkur vita af því að ég náði öllum prófunum fyrir jól Hlæjandi
En já ég bara hreinlega nenni ekki að blogga meir þannig að ég læt hér einn brandara frá honum pabba mínum fylgja með hér fyrir neðan.
 

Heilaígræðsla.......                                                                                                             

 Á spítalanum voru ættingjarnir saman komnir á biðstofunni þar sem einn fjölskyldumeðlimur lá mjög veikur. Loksins kom læknirinn þreytulegur og dapur. "Ég er hræddur um að ég færi ykkur slæm tíðindi" sagði hann og horfði upp á áhyggjufull andlit ættingjanna. "Eina von ástvinar ykkar er sú að hann fái heilaígræðslu. Þessi aðgerð hefur ekki ennþá verið prófuð til hlítar og er mjög áhættusöm en er jafnframt eina vonin í þessari stöðu. Tryggingarnar greiða allan kostnað af aðgerðinni en þið þurfið að greiða sjálf fyrir heilann". Ættingjarnir sátu hljóðir og meltu með sér þessar fréttir. Eftir dálítinn tíma spurði einn þeirra. "Hvað kostar heili?" Læknirinn svaraði strax."Karlmannsheili kostar eina milljón en  kvenmannsheili kostar hundrað og fimmtíu þúsund". Allir ættingjarnir urðu frekar vandræðalegir en karlmennirnir forðuðust að horfast í augu við konurnar. Nokkrir gátu ekki á sér setið og glottu og jafnvel flissuðu. Einn þeirra gat þó ekki hamið forvitni sína og spurði þeirrar spurningar sem alla langaði að spyrja að. "Af hverju er karlmannsheilinn svona mikið dýrari"? Læknirinn brosti umburðarlyndur af einfeldi mannsins og útskýrði þetta fyrir hópnum. "Þetta er bara þetta venjulega verð sem sett er upp, við getum ekki selt kvenmannsheila dýrari en þetta því þeir eru notaðir"!!!

Jólin eru kominErla Ásmundsdóttir


Gleðileg jól



Klukk...Erla Ásmundsdóttir

Jæja nú er víst komið að mér. Hún Kristín, betur þekkt sem Kitta, klukkaði mig og þar af leiðandi er ég neydd til þess að segja 7 hluti um sjálfan mig sem ekki allir vita. Hér kemur það

  1. Ég er með spékoppa í lærunum. Þeir eru meira að segja þrír. Málið er þannig að ég fæddist veik og það voru gerð læknamistök á mér með þeim afleiðingum að það eru þrjár holur í lærunum mínumHlæjandi

  2. Ég get verið rosalega feimin. Hvort sem fólk trúir því eða ekki þá er ég svolítið feimin og þá sérstaklega ef ég er í kringum fólk sem ég þekki ekki vel

  3. Ég hef sofið hjá giftum manni. Þetta er hlutur sem ég ætlaði mér aldrei að gera. Þessi maður laug því að mér að hann væri ekki giftur en svo daginn eftir sagði vinur hans mér frá því. Ég hef aldrei verið jafn brjáluð á ævini og hef held ég aldrei skammast mín jafn mikið heldur Skömmustulegur

  4. Ég er kjaftaskjóða. Það erfiðasta sem ég veit um er að þaga yfir leyndarmáli. Ég á það til að kjafta hlutum sem ég má ekki segja frá, svo lengi sem það er ekki eitthvað alvarlegt. Ég kjafta bara frá hlutm eins og hvað fólk fær í ammalisgjöf og hver svaf hjá hverjum og svoleiðis aldrei neinu sem skiptir miklu máli 

  5. Ég er með stór brjóst.Koss Það vita það ekki margir sko...

  6. Ég er að fara flytja frá mömmu og pabba.  Núna í janúar er ég að fara að flytja upp á kanavöll. Þar mun ég leiga 123 fermetra íbúð ásamt Ingibjörgu og Kamillu vinkonu minni úr skólanum.

  7. Ég sakna þess að búa í eyjum. Miða við hvað ég hef það gott hér í kef er það alveg ótrúlegt hvað ég sakna þess að búa í Vestmannaeyjum. Vinir mínir, systir og leikhúsið það er málið... En ég flyt samt ekki til eyja fyrr en ég er búin að mennta mig.

Jæja þá er ég búin að þessu og ég verða að viðurkenna það að þetta var mjög erfitt. En annars er ég að spá í að klukka Ástu Steinunni, Valgerði frænku og Halldóru Ríkey.

Ekki hringja Kitta...Erla Ásmundsdóttir

Jæja það er víst kominn tími á blogg þegar að fólk er farið að hóta manni með því að hringja í mann og annað. Brosandi
En það sem er að frétta af mér er að prófin eru loksins búin, GLEÐI GLEÐI GLEÐI. Vonandi náði ég þeim öllum en annars veit maður ekki, þetta voru rosalega erfið próf Gráta
En já það sem ég ætlaði að segja ykkur var að ég kláraði í prófum á föstudaginn og eins og í öllum skólum þá var próflokadjamm. Ég skal segja ykkur frá mínu próflokadjammi hér fyrir neðan í stikkorðum.
Jamm eins og ég sagði þá eru prófloka"djömm" mismunandi og mitt var eitthvað smá svona en annars vil ég ekkert vera að tala um þetta kvöld meira. Skömmustulegur

Svo vil ég hér í lokin fá ykkur sem lesið þetta hjálpa mér við það að ákveða hvar ég ég að vera um áramótin. Er málið að vera í eyjum eða hér í kef?

Prófin nálgastErla Ásmundsdóttir

Shit hvað það er stutt í prófin ekki nema 6 dagar. Þetta er búið að vera svo fljótt að líða að það er ekkert eðlilegt en það verður gott þegar að þetta er búið.
En jæja það er víst bannað að vera eyða tímanum í að blogg þannig að ég verð bara að blogga fyrir ykkur eftir próf.......
                                                             BÆJÓ

25. Nóvember...Erla Ásmundsdóttir

Ég á ammali í dag,
ég á ammali í dag,
ég á ammali hún ég,
ég á ammali í dag.
veiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
HlæjandiSvalurTala af sérSaklausUllandiGlottandiÞögull sem gröfinKoss
Síđa 2 af 5

Prófíll

Auglýsing

Könnun

Á ég ađ vera ljóshćrđ eđa dökkhćrđ?

Klukkan

Teljari

Atburđarteljari

Gagnasafn