smella.bloggar.is
Smá djókur í tilefni dagsins...Erla Ásmundsdóttir
Gamla fólkið á elliheimili úti á landi var orðið afar þrúgað og meðtekið af efnahagsbölsýnis bylgjunni í fjölmiðlunum.Forstöðukonan hafði sverar áhyggjur af þessu.
Í morgun var leikfimi á heimilinu. Forstöðukonan bað íþróttafræðinginn að vera nú heldur á léttu nótunum og fyrir alla muni ekki minnast á efnahagsmál eða þrengingar.
Þetta væri alveg að fara með gamla fólkið.
Íþróttafræðingurinn sagði það ekki nema sjálfsagt.
Svona hóf hann tímann:
"Kæru vinir! Í dag byrjum við á mjög léttri æfingu. Við réttum hendur út frá hliðunum, beygjum olnbogana og bönkum flötum lófum létt á bringuna, síðan réttum við úr höndunum og kreppum snöggt hnefana og endurtökum allt aftur og aftur," og svo hrópaði hann:
"Koma svo! Banka - kreppa, banka - kreppa, banka - kreppa......!"
Ryksugan á fullu...Erla Ásmundsdóttir
Jæja krakkar mínir ég verða að segja ykkur frá því að ég er búin að vera geggjað dugleg í dag. Ég byrjaði á því að fara í skólann kl 8:30 í morgun og svo kom ég heim og tók til hjá mér. Ég er ekkert smá stolt af mér, það er svo fínt og hreint hér inni að það er geðveikt. En að öðru, Ásta Steinunn og Arndís eru að koma til mín á eftir og eins og alltaf þegar að við hittumst þá er sko stuð. Þær voru líka hjá mér fyrir tveim vikum og vitiði þetta var svo fyndið. Það mætti halda að við hefðum orðnar 16 ára aftur, við létum eins og fífl og djömmuðum úr okkur allt vit. Við erum búnar að ræða það að við ætlum að vera rólegri núna um helgina
en það kemur nú bara í ljós.En já ég er byrjuð alveg á fullu í kennó og það er ógó gaman. Ég er búin að kynnast fullt af skemmtilegu fólki og meira að segja búin að tjútta með þeim líka, að sjálfsögðu. Það var nefnilega Laugavatnsferð síðasta föstudag og við fórum 10 saman úr bekknum og það var rosalega gaman hjá okkur, við unnum búningakeppnina og allt. Við vorum svo flott, við vorum öll sjóræningjar og við lögðum rosa mikið í þetta. En já svo fór ég í gær á aðalfund hjá stúdentafélaginu í kennó og bauð mig fram sem nýnemastjórnanda ooooggg ég var kosin. Þannig að ég er ekkert að fara slaka á á næstuni.

Hún Jessý mín er komin á tíma, hún var sett á mánudaginn (15.sept.) en það er ekkert að gerast hjá henni. Hún er ótrúlega hress og það er greinilegt að hann/hún æltar að verða eins og mamma sín (láta bíða eftir sér). En ég get varla beðið eftir því að þetta komi hjá henni, mér finnst stundum eins og ég sé að fara eignast barn en ekki hún.
En hún Jessý mín er búin að lofa því að ég fái að kalla mig Erlu frænku sem mér finnst ógó gaman. Það er bara spurning hvort þetta sé stelpa eða strákur, í gær hélt ég að þetta væri stelpa en í dag held ég strákur, ég er alltaf að skipta um skoðun. Ég er búin að ákveða það að ég kem til eyja eftir 2 vikur, mér skilst að það sér hippahátíð þá sem er bara geðveikt, en aðalástæðan fyrir því að maður er að koma er að sjálfögðu litla krílið hjá Jessý og Ómari sem ætti að vera komið í heimin. Aldrei að vita nema maður verði í heila viku

En já ég er að spá í að fara drífa mig í að gera ritgerð svo ég geti farið að versla á eftir áður en stelpurnar koma til mín. Verum í bandi allir
Bæjó
P.s. Munið að kvitta fyrir ykkur
Hvađ er í gangi?Erla Ásmundsdóttir
Jæja krakkar mínir þá held ég að það sé kominn tími á nýtt blogg. Ég bara hef ekki nennt að vera inni að blogga í sumar þar sem það er búið að vera svo geggjað veður að ég hef bara verið á pallinum hjá mömmu næstum því upp á dag.
En sumarið hefur verið svona hjá mér:
Flokkstjóri hjá götuleikhúsinu - bara gaman, vonandi fæ ég þessa vinnu aftur að ári.
Árgangsmót - snildar helgi, ég var blid full og hef sjaldan skemmt mér jafn vel og ég gerði þessa helgi. Árgangur 1984 frá eyjum er nátturulega bara flottasti árgangur í heimi.
Brúðkaup hjá Haffý frænku - hún var bara falleg.
Vinna og vinna og vinna á Paddy´s, það klikkar aldrei.
Húsafell - fórum fimm saman í roadtrip, lögðum bara að stað frá kef og ákváðum að byrja á því að fara á Borganes, þegar að þangað var komið var pening kastað upp til þess að ákveða hvert við færum. Við enduðum á Húsafelli og viti menn það var geggjað. Við hittum fullt af fólki sem við þekktum og skemmtum við okkur að sjálfsögðu mjög vel.
Þjóðhátíð - ERTU AÐ GRÍNAST, ég hef alltaf sagt að þjóðhátíð sé það allra skemmtilegasta sem til er og ég ætla að segja það aftur, Þjóðhátíð er eitt það skemmtilegasta sem til er. Ég tjúttaði frá fimmtudegi til sunnudags (eða mánudags). Stuðið var svo mikið á sunnudeginum að ég var ekki komin heim fyrr en klukkann eitt eftir hádegi á mánudeginum. Ég lendi í einu geggjaðasta gítarpartýi sem ég hef farið í um ævina og hafa þau ekki verið fá hjá mér, en þetta toppaði allt. Á tímabili voru 5 eða 6 gítarar, trompet, tromma (tóm fata) og fullt af hristum í gangi, þetta segir held ég allt sem segja þarf. En jæja ekki nema 362 dagar í næstu hátíð og ég bíð spennt.
En já, þetta er held ég öll svona aðalatriðin . En svo verð ég að segja frá því að næstu helgi er útskriftin í Keili. Maður er loksins að útskrifast í alvöru og þá get ég farið að byrja í háskólanum. En ég ákvað það að fara í kennó og mun ég byrja þar 25. ágúst næstkomandi, bara spennó.
Á næstuni er svo:
Útskriftarpartý næstu helgi sem endar á Sálarballi.
Byrja aftir í skólanum 25. ágúst
Ljósanótt fyrstu helgina í sept.
Jessý er sett 15. sept þannig að ég bíð spennt eftir þeirri prinsessu eða prins.
Já... þá held ég að þetta sé orðið gott, ég ætla að fara drífa mig upp í rúm að lúlla.
Þangað til næst. Knús og klossar
P.S allir að kvitta fyrir sig.
Háskóli hummm ekki slćmt...Erla Ásmundsdóttir
Jæja ætla bara láta vita af því að ég náði öllum prófunum og er þar að leiðandi á leiðinni í háskóla í haust. Þið trúið því ekki hvað ég er glöð að hafa náð þess öllu saman. Ég var þannig manneskja, þegar að ég var í FÍV, sem féll á öllum prófum og var alveg sama. Segi nú samt kannski ekki öllu en svona nánast öllu. En fyrir tveimur árum síðan þegar að ég bjó í eyjum þá var ég með 42 einingar, núna er ég með 123 einingar samt bara búin að vera í fullum skóla í 9 mánuði.

Síðustu helgi fór ég á Jet Black Joe tónleika í höllini og vitiði þeir voru GEÐVEIKIR. En mig langar nú samt mest að hrósa vinum mínum þeim Arndísi og Sæþóri fyrir frábæra fyrir tónleika. Þau sem sagt ásamt Þóri voru að hita upp fyrir Jet Black Joe og þau voru FRÁBÆR með einu orði sagt. Ég held að ég hafi aldrei verið jafn stolt af mínu fólki áður. Þegar að þau voru ný búin að spila þá fór ég úr að fá mér ferskt loft
og þá heyrði ég í fólki vera að tala um það hvar þessi geggjaða söngkona hefur verið að fela sig. Vitiði það að ég var svo stolt af þeim.Annars er það að frétta hjá mér í dag að ég er bara byrjuð á fullu að vinna. Ég er að vinna í 88 húsinu, það er menningamiðstöð fyrir unglinga á aldrinum 16 - 25 ára. Eins og er er ég bara niðri í 88 húsi að útrétta og annað en svo byrja ég 2 júní að vera flokkstjóri yfir götu og leikhússmiðjuni á vegum vinnuskólans. Mér finnst það bara spennandi og ég get ekki beðið eftir því að júní kemur.
Á dagskrá hjá mér í sumar er svo árgansmót í enda júní og svo að sjálfsögðu Þjóðhátíðin.
Bless bless
Erla Ásmundsdóttir "verðandi háskólanemi"

P.S allir að kvitta fyrir sig...
SumarfríErla Ásmundsdóttir
Jæja þá er ekkert annað að frétta en gleði gleði gleði.Ég var að enda við að klára síðasta prófið mitt sem var í sögu og ég verð bara að segja það að þetta er ekkert grín. Ég er búin að vera í prófum og að skila lokaverkefnum núna síðustu 3 vikur og þetta er búið að vera svo geggjað erfitt. Ég bara hreinlega get ekki beðið eftir því að fara upp í sumarbústað með fjölskylduni á efitr að slaka á.
En já ég ætla nú samt að vona að ég hafi náð öllum þessum prófum út af því að ég nenni ekki að vera að vesenast í því að fara í upptökupróf í júní.
En já ég ætlaði bara svona að láta vita af mér... ég er ennþá á lífi eftir allann próflesturinn.
Þangað til seinna bæjó
Erla Ásmundsdóttir
Sódóma...Erla Ásmundsdóttir
Jæja krakkar mínir ég hef hér smá sögu að segja ykkur frá..
Málið er þannig að fyrir svona ca 1 og háfum mánuði síðan ætlaði ég að leyfa mér það að setjast fyrir framan sjónvarpið og horfa á það. Ég tók til kók í glas, öskubakka, sígó, sæng og símann minn og ætlaði að fara að leggjast en þá fann ég ekki fjarstýringuna. Ég byrjaði að leyta og leyta og leyta og leyta en aldrei fann ég helvítis fjarstýringuna. Stelpurnar komu heim og ég spurði þær hvort þær vissu um hana en nei það gerðu þær ekki, þannig að við fórum að leyta og leyta og leyt og leyta en aldrei fannst fjarstýringin. Jæja eftir svona 3-4 vikur af fjarstýringarleysi fór maður nú að venjast því og sætti sig bara við það að horfa á DVD-myndir. En svo var það ekki fyrr en í fyrradag þegar að ég var að gera mig reddy til þess að kíkja aðeins á Paddy´s þegar að ég rekst á fjarstýringuna í sófanum
Ég viðurkenni það að ég varð mjög hissa en samt mjög glöð með þetta afrek hjá mér. Það sem ég skil ekki við þetta allt saman er að ég var búin að leyta margoft í sofanum, ekki bara ég við allar vorum búnar að leyta þar oft. En það skiptir ekki öllu máli, það sem skiptir máli er að ég nennti að blogga 
En jamm það er gaman að segja einnig frá því að eftir aðeins 21 er ég útskrifuð úr Keili. Veiveivei... og mig hlakkar ekkert smá mikið til og þá verður sko fyrst farið á djammið

En annars ætla ég líka bara að láta ykkur vita að það mun mjög líklega ekki koma neitt blogg frá mér fyrr en skólinn er búinn, það er svo mikið að gera hjá mér í honum núna að það er ekki eðlilegt. Og svo vil ég líka bara biðjast afsökunar á því að vera svona leiðinlegur bloggari

Bæjó
P.S: allir að kvitta fyrir sig.

Góđur...Erla Ásmundsdóttir
Einn daginn fór gömul kona með fulla tösku af peningum í banka.Við afgreiðsluborðið sagði hún að hún vildi bara tala við bankastjórann, um að opna sparireikning: ''þetta eru miklir peningar, þú skilur.''
Eftir langar rökræður var konunni fylgt til bankastjórans -viðskiptavinurinn er konungur!!!
Bankastjórinn spurði um upphæðina sem konan vildi leggja inn.
Hún sagði honum að það væri um 50 milljón evrur að ræða. Hún tæmdi töskuna fyrir hann. Auðvitað varð bankastjórinn forvitin um hvaðan allir þessir peningar kæmu.
´´Kæra frú, það kemur mér á óvart hversu mikla peninga þú hefur
- hvernig stendur á því?´´
Gamla konan svaraði honum ´´ Mjög einfalt. Ég veðja!''
´´Veðjar?'' spurði bankastjórinn, ´´hvers konar veðmál?''
Gamla konan svaraði:´´Jah, allt mögulegt. Til dæmis, veðja ég við þig, uppá 25.000 evrur að eistun á þér séu ferköntuð!´´
Bankastjórinn fór að hlæja og sagði: ´´Það er fáránlegt! Á þennan hátt getur þú aldrei unnið svona mikla peninga.´´
Jæja, eins og ég sagði áðan, þá er það á þennan hátt sem ég vinn mér inn peningana. Ert þú tilbúin til að taka þátt í þessu veðmáli?´´
´´Auðvitað!´´ svaraði hann. Það voru jú miklir peningar í húfi.
´´Ég veðja semsagt 25.000 evrum uppá að eistun á mér séu ekki
ferköntuð.´´
Gamla konan svaraði:´´ Samþykkt, en þar sem þetta eru miklir
peningar, má ég þá koma við á morgunn, kl 10:00 með lögfræðinginn minn, svo að við höfum líka vitni?´´
´´Auðvitað!´´ Bankastjórinn samþykkti.
Um nóttina var bankastjórinn frekar taugaóstyrkur og skoðaði
ýtarlega á sér eistun, tímunum saman. Fyrst öðrumegin svo hinumegin. Að lokum með hjálp einfalds prófs varð hann 100% öruggur. Hann myndi vinna veðmálið, alveg viss!
Morguninn eftir kom gamla konan, kl 10:00 í bankann með
lögfræðinginn sinn.
Hún kynnti mennina tvo hvor fyrir öðrum og endurtók veðmálið
uppá 25.000 evrur.
Og uppá nýtt samþykkti bankastjórinn veðmálið að eistun á sér
væru ekki ferköntuð. Eftir það bað hún hann um að taka niður um sig buxurnar til að skoða málið (punginn) einu sinni.
Bankastjórinn tók niður um sig buxurnar, gamla konan kom nær, skoðaði punginn í rólegheitum og spurði hann varlega hvort hún mætti koma við eistun.
Mundu eftir að það eru miklir peningar í húfi.
´´O.K.´´ sagði bankastjórinn öruggur.
´´ Þetta er 25.000 evra virði og ég skil vel að þú viljir vera viss.
Þá kom konan enn nær og hélt eistum mannsins í lófa sér.
Þá tók bankastjórinn eftir því að lögfræðingurinn var farinn að berja hausnum á sér við vegginn.
Bankastjórinn spurði konuna:´´ Hvað er að lögfræðingnum þínum?´´
Hún svaraði: ´´ Ekkert, ég veðjaði við hann, uppá 100.000 evrur
að ég skildi í dag kl 10:00 hafa eistu á bankastjóra í hendi mér.
Ţetta er bara snilld....hahahaErla Ásmundsdóttir
Hver getur gleymt sögunni um konuna sem setti köttinn sinn inn í örbylgjuofninn, kærði fyrirtækið og vann málið á þeim forsendum að það stæði ekki í leiðbeiningunum að það mætti ekki setja dýr inn í ofninn. Þar af leiðandi hafa hin ýmsu lönd tekið til sinna ráða, og sett fáránlegustu lög til að koma í veg fyrir misskilning af þessu tagi. Hér koma nokkur af þeim....
Í Ástralíu er bannað að stunda kynlíf með kengúrum auk þess sem bannað er að eiga rúm á ákveðnum stöðum án tilskilinna leyfa. Almennir borgarar mega heldur ekki skipta um ljósaperur. Löggiltir rafvirkjar mega einir gera slíkt. Það fáránlegasta af þessu öllu saman er kannski það að í bænum Victoria er bannað að vera í bleikum stuttbuxum eftir hádegi á sunnudögum.
Í bænum Santa Cruz í Bólivíu er bannað að stunda kynlíf með móður og dóttur á sama tíma. (ojojojojojojojojoj)
Kanadabúum er bannað að stíga um borð í flugvél eftir að hún er farin á loft. Það er líka ólöglegt að fjarlægja plástur og önnur sárabindi opinberlega. Í bæ einum segja lögin enn fremur til um að þegar fangi losnar úr fangelsi skal honum afhent hlaðin byssa ásamt hesti svo hann geti riðið út úr bænum sem fyrst.
Íbúum Calgary er bannað að kasta snjóboltum án þess að hafa sérstakt leyfi frá bæjarstjóra og í Nova Scotia er bannað að vökva garða þegar það rignir. Þar er jafnframt bannað að prumpa á meðan maður reykir en í bænum Oxbridge er bannað að hafa internettengingu sem er öflugri en 56k.
Í Kólumbíska bænum Cali mega konur aðeins stunda kynlíf með eiginmanni sínum og þegar það gerist í fyrsta skipti skal móðir konunnar vera viðstödd.
Enskum konum er bannað að borða súkkulaði í almenningssamgöngutækjum, s.s. lestum og strætisvögnum. Það er líka bannað að borða bökur á jóladag og svo mega eiginmenn alls ekki lemja konur sínar eftir kl. 21 á kvöldin.
Í Frakklandi er bannað að kyssast á járnbrautastöðvum og þarlendir svínabændur mega ekki undir neinum kringumstæðum kalla svínið sitt Napóleon.
Í Indónesíu liggur dauðarefsing við sjálfsfróun.
Ítalskir karlmenn mega ekki ganga um í kjólum. Ef þeir gera það eiga þeir á hættu að verða handteknir. Það er líka bannað að blóta opinberlega og í vissum héröðum mega konur sem heita María ekki stunda vændi.
Í Líbanon mega menn stunda kynlíf með dýrum svo framarlega sem dýrið er kvenkyns. Ef það er karlkyns liggur dauðarefsing við brotinu.
Í Sádí-Arabíu mega karlkyns læknar ekki meðhöndla konur. Lögin segja jafnframt að konur megi ekki gerast læknar. (þetta er náttúrulega fulkomnlega rökrétt hugsun)
Í Sviss mega menn ekki pissa standandi eftir kl. 22 og heldur ekki hengja upp þvott utandyra, þvo bíla eða slá gras á sunnudögum. Þá liggja sektir við því að gleyma lyklum í ólæstum bílum.
Í Singapore eru munnmök með öllu ólögleg auk þess sem samkynhneigð er alls ekki leyfð. Ennfremur er allt klám bannað og fólk má ekki ganga um nakið heima hjá sér þar sem það er talið til kláms.
Í Skotlandi segja lögin að ef einhver bankar upp á og biður um að fá að nota klósett þá skal hann fá að gera það ella hljóti húsráðandi sektir.
Í Tælandi er ólöglegt að fara út úr húsi án þess að vera í nærfötum.
Í Alabama er bannað að keyra með bundið fyrir augun og það má heldur ekki sigla bátum á götunum. Það furðulegasta er samt að fólk má ekki vera með vöffluís í rassvasanum!
Íbúum Alaska er mjög umhugað um elgina sína og þar af leiðandi stendur það í lögum að ekki megi láta þá hanga úr flugvél. Það má heldur ekki henda þeim út úr flugvélum eða gefa þeim áfengi.
Asnar mega ekki sofa í baðkörum í Arizona og þar að auki er ólöglegt að hafa fleiri en tvö kynlífshjálpartæki á einu og sama heimilinu. Í Maricoba County mega svo ekki fleiri en 6 stúlkur búa í sama húsinu.
Í Arkansas eru munnmök bönnuð og ekki má geyma krókódíla í baðkörum. Þar að auki er ólöglegt að bera nafn ríkisins vitlaust fram.
Til að setja upp músagildrur þurfa menn að hafa veiðileyfi í Kaliforníu. Þar hafa páfuglar líka forgang í umferðinni, nema þeir séu á vappi í innkeyrslum fólks. Í Baldwin Park er bannað að hjóla í sundfötum og sums staðar verða menn að eiga minnst tvær kýr ef þeir ætla að ganga um í kúrekastígvélum. Þá liggur allt að 500$ sekt við því að nota kjarnorkuvopn innan bæjarmarka Chico og í Los Angeles er bannað að þvo tvö ungbörn í sama baðkarinu. Einnig er bannað að eiga flóðhesta en ef menn ætla út að labba með fílinn sinn verður hann að vera í bandi. Að lokum er bannað að þvo bílinn sinn með nærfötum.
Floridabúar mega ekki stunda kynlíf með broddgöltum og alls ekki reka við opinberlega eftir kl. 18 á kvöldin. Þá mega ógiftar konur ekki stunda fallhlífarstökk á sunnudögum og það er bannað að fara í sturtu nakinn. Eiginmenn mega heldur ekki kyssa brjóst konu sinnar og þar er líka bannað að syngja á meðan maður er í sundfötum.
Lögreglumenn í connecticut hafa leyfi til að stpðva hjólreiðamenn ef þeir fara yfir 100 km hraða og í bænum Devon er bannað að labba aftur á bak eftir myrkur.
Þegar fólk fer í messu á sunnudögum í Georgiu skal bera hlaðinn rifill á sér og allir íbúar þar skulu minnst eiga eina grashrífu á mann. Þar má heldur ekki binda gíraffann sinn við ljósastaur. Í bænum Marietta var bannað að hrækja út úr fólksbílum og strætó en það má hrækja ef maður er á vörubíl.
Enn eru lög í gildi í Illinois sem banna fólki að tala ensku og þar liggja líka sektir við að pissa upp í munn nágranna síns. Chicagobúar hafa heldur ekki leyfi til að veiða í náttfötunum eða gefa hundinum sínum viskí. Hins vegar má fólk undir 17 ára aldri mótmæla nakið fyrir framan ráðhúsið, svo framarlega sem það hefur leyfi foreldra sinna, og dýr geta fengið fangelsisvist eins og fólk. T.d. var api dæmdur í 5 daga fangelsi fyrir búðarhnupl. Í bænum Oblong er svo stranglega bannað að stunda kynlíf á meðan maður er að veiða á brúðkaupsdaginn sinn og þar eru skrímsli heldur ekki leyfð innan bæjarmarkanna.
Talan Pí er venjulega um 3,14 nema í Indianaríki þar sem hún er skv. lögum 4. Þar er öpum líka bannað að reykja og svörtum köttum er skylt að vera með klukku um hálsinn ef það er föstudagurinn 13.
Í Lowa mega kossar ekki vara lengur en 5 mínútur í senn og einhentir píanóleikarar mega ekki krefjast greiðslu fyrir vinnu sína. Jafnframt er slökkviliðsmönnum skylt að æfa sig í minnst 15 mínútur áður en þeir leggja af stað í brunaútkall og að auki mega hestar ekki borða brunahana.
Hænsnaþjþofar mega ekki stunda ,,vinnu" sína á nóttunni í Kansas en þar er líka bannað að veiða fisk með berum höndum.
Lög í Kentucky segja að maður teljist edrú uns hann stendur ekki lengur í lappirnar og þar er líka skylda að fara í bað einu sinni á ári. Konur mega heldur ekki kaupa hatta án samþykkis eiginmanns síns og ólöglegt er að þiggja endaþarmssamfarir. Þar má heldur ekki binda krókódíla við brunahana.
Í Massachusetts er bannað að borða meira en 3 samlokur í jarðarför og ljón mega ekki fara með eigendum sínum í bíó. Górillur mega heldur ekki sitja í aftursæti bíla.
Snjókorn falla á allt og alla...Erla Ásmundsdóttir
Já þetta er sko söngur sem allir geta sungið hástöðum núna, ekki út af því að það eru að koma jól heldur út af því að það ætlar held ég bara aldrei að hætta að snjóa. Svona fyrir mína parta þá er ég alveg orðin full södd af þessu veseni. Eins og kannski flestir vita þá keyri ég ekki um á jeppa þannig að það er búið að vera smá brasi svona að komast í skólann og úr honum og annað. Ég get kannski ekki kvartað mikið þar sem ég er ekki stödd í Vestmannaeyjum. En annars nenni ég ekki að væla yfir þessum snjó lengur.
Að örðu máli þá er ég á leiðinni til eyja næstu helgi vei. Ég get hreinlega bara ekki beðið. Við erum að koma nokkur saman og er því búin að leigja okkur bústað til að gista í. Ég vona að það verði gaman og að vinir mínir í eyjum geti séð sig fært um að mæta í heimsókn og kynnast hluta af nýju vinum mínum hér í kef.
Annars hef ég svo ótrúlega lítð að segja ykkur núna þannig að ég ætla bara að láta þetta gott heita og ég lofa því að koma með skemmtilegra blogg þegar að ég kem frá eyjum.
Bið að heilsa......
P.S. Allir að kvitta fyrir sig takk...
Heimspeki Charles SchultzErla Ásmundsdóttir
Charles Schultz er höfundur teiknimynda syrpunnar Peanuts. Þú þarft
ekki að svara spurningunum.
Lestu verkefnið og þér mun verða þetta ljóst:
1. Nefndu fimm auðugustu einstaklingana í heiminum.
2. Nefndu fimm síðustu sigurvegara í fegurðarsamkeppni Evrópu.
3. Nefndu tíu einstaklinga, sem hafa unnið Nobels verðlaunin.
4. Nefndu sex leikara og leikkonur, sem unnu Óskars verðlaunin á síðasta ári.
Hvernig gekk þér?
Niðurstaðan er, að enginn okkar man fyrirsagnir gærdagsins. Þetta
eru ekki
annars flokks afreksmenn. Þeir eru þeir bestu á sínu sviði.En
klappið deyr
út.Verðlaunin missa ljómann. Afrekin eru gleymd. Viðurkenningarnar og
skírteinin eru grafin með eigendum sínum.
Hér eru nokkrar aðrar spurningar. Sjáðu hvernig þér gengur með þær:
1. Skrifaðu nöfnin á fimm kennurum sem hjálpuðu þér á þinni skólagöngu.
2.Nefndu þrjá vini, sem hafa hjálpað þér á erfiðum stundum.
3. Nefndu fimm einstaklinga, sem hafa kennt þér eitthvað mikilvægt.
4.Hugsaðu um fimm einstaklinga, sem kunnu að meta þig að verðleikum.
5.Hugsaðu um fimm einstaklinga, sem þér þykir gott að umgangast.
Auðveldara?
Lexían: Fólkið sem skiptir þig mestu máli í lífinu eru ekki þeir,
sem hafa
bestu meðmælabréfin, mestu peningana eða flestu verðlaunin.
Heldur þeir, sem finnst þú skipta mestu máli.
Sendu þetta áfram til þeirra einstaklinga, sem hafa haft jákvæð
áhrif á
líf þitt.
Hafðu ekki áhyggjur af því, að heimurinn sé að farast í dag. Það er nú
þegar morgun í Ástralíu. (Charles Schultz)

